999 kr.
Innihaldslýsing: Lífrænt ræktuð hýðishrísgrjón, löng.
Næringargildi í 100g: Orka 1474kJ/347kkal, Fita 2,92g, þar af mettuð 0,58g, Kolvetni 78,8g, þar af sykurtegundir 0,85g, Trefjar 1,0g, Prótein 6,7g, Salt 0,007g.
Upprunaland: Ítalía.
Á lager
Léttar og náttúrulega sætar vefjur sem henta vel fyrir bæði sæta og kryddaða fyllingu. Þær má m.a. nota í stað tortilla vefja í næstum hvað sem er eða fylla með vegan rjóma og berjum í desert!
Þær eru ferhyrndar í laginu og u.þ.b. 19 cm á lengd og breidd.
Innihaldslýsing: hreinn kókos, kókosvatn, kaldpressuð kókosolía, malað túrmerik.
Næringargildi í 100g: Orka 2090kJ/500kkal, Fita 35,71g, þar af mettuð 32,14g, Kolvetni 42,86g, þar af sykurtegundir 21,43, Trefjar 14,29g, Prótein 7,14g, Salt 0,18g.
Þó matcha neysla sé e.t.v. frekar ný tískubylgja á Vesturlöndum hefur þetta nærandi te verið partur af Japanskri menningu öldum saman. Kiki Health sækir því telaufin sín alla leið til Kyoto í Japan þar sem temenningin á sér ævafornar rætur. Runnarnir eru ræktaðir nálægt árbakkanum í næringarríkum jarðvegi og öll ræktun stunduð með hefðbundnum japönskum aðferðum. Uppskeran er því hágæða telauf sem unnin eru í fínt duft eftir að stilkar og æðar laufblaðanna hafa verið fjarlægð.
Engu er bætt í duftið og því inniheldur þessi fallega krukka eingöngu 100% hreint duft af “ceremonial grade” japönsku matcha tedufti sem má nota á fjölbreyttan hátt. Matcha inniheldur hátt hlutfall andoxunar- og næringarefna með fjölbreytt heilsubætandi áhrif og því er bæði ljúft og uppbyggjandi að njóta bolla af slíku tei á hverjum degi.
Hrærið 1/2 – 1 tsk af duftinu kröftuglega saman við 100 ml af vatni þar til það hefur leyst alveg upp. Vatnið má ýmist vera kalt eða volgt en ekki er mælt með að hafa það of heitt. Til tilbreytingar má líka nota volga , freyðandi jurtamjólk, bragðbæta með örlitlu kakói eða nota duftið út í smoothies, hræra því saman við jógúrt eða gera tilraunir með bakstur og eftirréttagerð með matcha ívafi.
Innihaldslýsing: Lífrænt grænt linsubaunamjöl, lífrænt grænbaunamjöl, lífrænt hýðishrísgrjónamjöl.
Næringargildi í 100g: Orka 1362kJ/325kkal, Fita 6,9g, þar af mettuð 1,3g, Kolvetni 11,3g, þar af sykurtegundir 6,3g, Trefjar 24,4g, Prótein 42,3g, Salt <0,02g.
Acai duftið frá Kiki Health er gert úr lífrænum, ómeðhöndluðum acai berjum sem hafa verið frostþurrkuð og möluð til að viðhalda næringargildi og bragðgæðum þeirra.
Þessi orkuríku ber innihalda mikið af A vítamíni, kalíni, magnesíum, kalki og járni. Duftið má nota sem fæðubót í drykki, þeytinga, grauta eða jafnvel í hrákökur og ís. Gott er að byrja á einni teskeið í hvern skammt og auka svo magnið eftir smekk. Berin eru náttúrulega römm og passa vel með sætari ávöxtum.
Við mælum með uppskrift Grænkera að dýrindis acai skál og fallegu kókosskálunum okkar til að lyfta upplifuninni á hærra plan.
Eldunarleiðbeiningar:
Látið tvo lítra af vatni sjóða. Bætið pasta út í. Lækkið hitann og látið krauma í 5-7 mínútur. Berið fram með snöggsteiktu grænmeti eða sósu að eigin vali.
Innihaldslýsing: Lífrænar edamamebaunir (grænar sojabaunir)(95%), lífrænt mungbaunamjöl (5%)..
Næringargildi í 100g: Orka 1362kJ/325kkal, Fita 6,9g, þar af mettuð 1,3g, Kolvetni 11,3g, þar af sykurtegundir 6,3g, Trefjar 24,4g, Prótein 42,3g, Salt <0,02g.
Alla daga frá kl.11:00 - 19:00
Faxafen 14, 108 Reykjavík
7793600
veganbudin@veganbudin.is
Veganmatur ehf. | KT 590517-0460 | VSKNR 128270