2.299 kr.
Klórella er heiti á örsmáum grænum þörungum sem fljóta á yfirborði vatns og beisla orku sólarinnar. Hún er einstaklega næringarrík fæða og frábær fæðubót.
Lífrænt vottaða klórellan frá Kiki Health er ræktuð í hreinum vatnsbólum. Þegar hún er tilbúin til vinnslu er hún þurrkuð og frumuveggir hennar brotnir til að auðvelda upptöku næringarefnanna. Reglulegar prófanir eru gerðar á afurðinni til að tryggja hreinleika hennar og ganga úr skugga um að engir þungmálmar séu til staðar. Engin aukaefni, bindi- eða fylliefni eru í töflunum, bara 100% hrein klórella.
Mælt er með að taka 6 – 10 töflur á dag með nægum vökva.
Á lager
Þó matcha neysla sé e.t.v. frekar ný tískubylgja á Vesturlöndum hefur þetta nærandi te verið partur af Japanskri menningu öldum saman. Kiki Health sækir því telaufin sín alla leið til Kyoto í Japan þar sem temenningin á sér ævafornar rætur. Runnarnir eru ræktaðir nálægt árbakkanum í næringarríkum jarðvegi og öll ræktun stunduð með hefðbundnum japönskum aðferðum. Uppskeran er því hágæða telauf sem unnin eru í fínt duft eftir að stilkar og æðar laufblaðanna hafa verið fjarlægð.
Engu er bætt í duftið og því inniheldur þessi fallega krukka eingöngu 100% hreint duft af “ceremonial grade” japönsku matcha tedufti sem má nota á fjölbreyttan hátt. Matcha inniheldur hátt hlutfall andoxunar- og næringarefna með fjölbreytt heilsubætandi áhrif og því er bæði ljúft og uppbyggjandi að njóta bolla af slíku tei á hverjum degi.
Hrærið 1/2 – 1 tsk af duftinu kröftuglega saman við 100 ml af vatni þar til það hefur leyst alveg upp. Vatnið má ýmist vera kalt eða volgt en ekki er mælt með að hafa það of heitt. Til tilbreytingar má líka nota volga , freyðandi jurtamjólk, bragðbæta með örlitlu kakói eða nota duftið út í smoothies, hræra því saman við jógúrt eða gera tilraunir með bakstur og eftirréttagerð með matcha ívafi.
Sérgrein fólksins á bak við Kiki Health er að leita uppi einstök gæði hvar sem þau er að finna í heiminum og koma þeim í handhægar umbúðir með sem lægstum tilkostnaði. Það markmið hefur tekist sérlega vel þegar kemur að lífræna túrmerik duftinu þeirra sem ræktað er í Indlandi, frostþurrkað og malað. Í gegnum allt framleiðsluferlið er þess gætt að skaðleg efni komist hvergi nærri jurtinni, allt frá umhverfi akranna til meðhöndlunar í þurrkun og pökkun.
Kosti túmeriks þarf vart að tíunda en það er þekkt fyrir bólgueyðandi og ónæmisstyrkjandi eiginleika sína auk þess að vera dásamlegt krydd og ómissandi í indverskum karrýréttum. Bættu klípu af túrmeriki í sem flestar máltíðir til að njóta áhrifanna sem best.
Lion’s Mane – ljónsmakkasveppurinn vex á trjám og hefur m.a. verið notaður í stað kjöts í matargerð meðal sumra þjóða. Í dag er hann fyrst og fremst notaður sem fæðubót líkt og í þessu drykkjardufti. Í myndbandinu hér að neðan útskýrir hinn finnski Tero nánar virkni sveppsins.
Einnig er burnirót að finna í þessari blöndu ásamt myntu, rósaberjum og stevíu.
[embed]https://www.youtube.com/watch?v=ClAVNte8OXI[/embed]
Notkun: Mælt er með að leysa duftið upp í 240ml af heitu vatni og njóta hvers sopa. Einnig má nota annan vökva, t.d. kaffi, volga möndlumjólk eða blanda út í smoothie drykki og skálar eða jafnvel sáldra yfir hafragraut!
Milda járnblandan frá Together er unnin úr mat til að gera hana bæði áhrifaríka og milda fyrir meltingarveginn. Matvælin sem notuð eru til vinnslu Together bætiefnanna eru meðhöndluð án hitunar eða aukaefna og því fylgja náttúrulegir eiginleikar matarins, t.a.m. ensím og plöntunæringarefni alla leið í hylkin.
Hylkin má taka með hefðbundnum hætti eða opna og blanda við mat eða vökva til að auðvelda inntöku.
Innihaldslýsing: Yeast concentrate* providing: Iron, Vitamin B6, Vitamin B12. Alfalfa concentrate providing: Folic Acid†. Vegecap (vegetable cellulose).
*A non-candida yeast. No known allergic reactions. †As Folate.
Magn næringarefna í hverju hylki: járn 14mg (100% RDS), B6 vítamín 2mg (143% RDS), B12 vítamín (methylcobalamin) 10μg (400% RDS), fólínsýra (sem folate) 100μg (50% RDS)
Ráðleggingar um notkun:
|
|
Þessi vara er:
Túrmerik er rót sem þekkt er fyrir bólgueyðandi og almenna heilsubætandi eiginleika sína. Með því að taka hana inn með svörtum pipar aukast áhrifin umtalsvert og því innihalda hylkin hann líka. Matvælin sem notuð eru til vinnslu Together bætiefnanna eru meðhöndluð án hitunar eða aukaefna og því fylgja náttúrulegir eiginleikar matarins, t.a.m. ensím og plöntunæringarefni alla leið í hylkin.
Hylkin má taka með hefðbundnum hætti eða opna og blanda við mat eða vökva til að auðvelda inntöku.
Innihaldslýsing: Turmeric root (Curcuma longa); Black pepper extract (piper nigrum root). Vegecap (vegetable cellulose)
*A non-candida yeast. No known allergic reactions.
Ráðleggingar um notkun:
|
|
Þessi vara er:
Together fjölvítamínið hefur verið unnið á náttúrulegan hátt og pakkað í hylki án fylli- og aukaefna. Samsetning næringarefna er sérstaklega aðlöguð að þörfum kvenlíkamans.
Hylkin má taka með hefðbundnum hætti eða opna og blanda við mat eða vökva til að auðvelda inntöku.
Innihaldslýsing: Yeast concentrate1 providing: Iron, Selenium, Zinc, Copper, GTF Chromium, Iodine, Niacin, Pantothenic Acid, Riboflavin, Vitamin B6, Thiamin, Vitamin B12 and Manganese; Lithothamnion Calcareum seaweed providing Magnesium; Vitamin C incorporated in citrus pulp; Beta Carotene incorporated in carrot concentrate; Vitamin E combined in vegetable oil; Biotin incorporated in corn meal; Folic Acid2 and Vitamin K2 incorporated in alfalfa concentrate. Tapioca extract3, Lichen providing Vitamin D3. Vegecap (Vegetable cellulose).
1An inactive and non-candida yeast, no known allergic reactions. 2As Folate. 3Non-GMO extract used to turn oil into powder.
Magn næringarefna í hverju hylki má skoða á vefsíðu Together hér.
Ráðleggingar um notkun:
|
|
Þessi vara er:
Alla daga frá kl.11:00 - 19:00
Faxafen 14, 108 Reykjavík
7793600
veganbudin@veganbudin.is
Veganmatur ehf. | KT 590517-0460 | VSKNR 128270