349 kr.
Kombucha drykkur með engifer. Bruggað með fyrsta flokks japönsku sencha grænu tei, vatni, lífrænum hrásykri og lifandi kombucha. Kaldpressuðum, lífrænum engifer blandað við fyrir aukinn kraft.
Innihaldslýsing: Vatn, hrásykur, kaldpressaður engifersafi, kombucha gerlar, grænt sencha te.
Næringargildi í 100g: Orka 67kJ/17kkal, Fita 0g, þar af mettuð 0g, Kolvetni 4,2g, þar af sykurtegundir 4,2g, Prótein 0g, Salt 0g.
Á lager
Þó matcha neysla sé e.t.v. frekar ný tískubylgja á Vesturlöndum hefur þetta nærandi te verið partur af Japanskri menningu öldum saman. Kiki Health sækir því telaufin sín alla leið til Kyoto í Japan þar sem temenningin á sér ævafornar rætur. Runnarnir eru ræktaðir nálægt árbakkanum í næringarríkum jarðvegi og öll ræktun stunduð með hefðbundnum japönskum aðferðum. Uppskeran er því hágæða telauf sem unnin eru í fínt duft eftir að stilkar og æðar laufblaðanna hafa verið fjarlægð.
Engu er bætt í duftið og því inniheldur þessi fallega krukka eingöngu 100% hreint duft af “ceremonial grade” japönsku matcha tedufti sem má nota á fjölbreyttan hátt. Matcha inniheldur hátt hlutfall andoxunar- og næringarefna með fjölbreytt heilsubætandi áhrif og því er bæði ljúft og uppbyggjandi að njóta bolla af slíku tei á hverjum degi.
Hrærið 1/2 – 1 tsk af duftinu kröftuglega saman við 100 ml af vatni þar til það hefur leyst alveg upp. Vatnið má ýmist vera kalt eða volgt en ekki er mælt með að hafa það of heitt. Til tilbreytingar má líka nota volga , freyðandi jurtamjólk, bragðbæta með örlitlu kakói eða nota duftið út í smoothies, hræra því saman við jógúrt eða gera tilraunir með bakstur og eftirréttagerð með matcha ívafi.
Innihaldslýsing: Haframjólk (hafrar (14%) (gl), sólblómaolía, þistilolía, sjávarsalt), chai blanda (kanill, engifer, fenika, kardimomma, negull, lakkrísrót, svartur pipar, kakó, anís).
Næringargildi í 100g: Orka 208J/50kkal, Fita 1,6g, þar af mettuð 0,4g, Kolvetni 7,8g, þar af sykurtegundir 5,7g, Prótein 0,6g, Salt 0,1g.
Blaðgræna er græni liturinn sem myndast náttúrulega í plöntum og þörungum. Hún er einstaklega næringar- og andoxunarrík og í fljótandi formi er auðvelt fyrir líkamann að ná hámarks nýtingu á kostum hennar. Kiki Health blaðgrænan er pressuð úr alfalfa grasi og er vökvinn alveg hreinn, án nokkurra litarefna eða annarra aukaefna.
Innihaldslýsing: Blaðgræna pressuð úr Medicago Sativa (alfalfa), hreinsað vatn.
Notkun:
Hristið vel fyrir notkun. Fullorðin: blandið einni matskeið (15ml) í vatn eða safa, helst á fastandi maga, 1-3 sinnum á dag. Börn: 1 teskeið (5ml) í vatn eða safa.
Geymsluþol: Geymið lokaðar umbúðir ekki við hærra hitastig en 25°C. Geymið flöskuna í kæli eftir opnun og notið innan tveggja vikna. Gætið þess að tappinn sé ávallt vel skrúfaður á.
Alla daga frá kl.11:00 - 19:00
Faxafen 14, 108 Reykjavík
7793600
veganbudin@veganbudin.is
Veganmatur ehf. | KT 590517-0460 | VSKNR 128270