399 kr.
Jackfruit ávöxturinn hefur spennandi áferð sem hentar vel í stað kjöts í ýmsa rétti. Ef þér finnst það hljóma vel en vantar innblástur mælum við eindregið með bókinni Grænkerakrásir sem inniheldur meðal annars dýrðlegar jackfruit uppskriftir!
Innihald dósarinnar vegur 565 gr en jackfruit magnið er 300 gr.
Innihald: grænn jackfruit ávöxtur (54%), vatn (45,85%), sítrónusýra (0,15%).
Næringargildi í 100 gr: Orka 126kJ/30kkal, Fita 0,3g, þar af mettuð 0g, Kolvetni 5,9g, þar af sykurtegundir 0g, Trefjar 0,6g, Prótein 0,9g, Salt 0g.
Á lager
Jackfruit ávöxturinn hefur spennandi áferð sem hentar vel í stað kjöts í ýmsa rétti. Niðursoðið jackfruit “confit” er innblásið af frönsku anda-confit og kemur í skemmtilega kryddaðri olíu.
Mælt er með að veiða stykkin upp úr olíunni, steikja þau á pönnu þar til þau brúnast örlítið og bera svo fram með góðri sósu og salati.
Innihald: grænn jackfruit ávöxtur, ólífuolía, hrísklíðsolía, rósmarín, timían, lárviðarlauf, sjávarsalt, hvítlaukur.
Næringargildi í 100 gr: Orka 540kJ/129kkal, Fita 10,2g, þar af mettuð 1,83g, Kolvetni 8,16g, þar af sykurtegundir 0g, Trefjar 6g, Prótein 1,54g, Salt 0,8g.
Sérgrein fólksins á bak við Kiki Health er að leita uppi einstök gæði hvar sem þau er að finna í heiminum og koma þeim í handhægar umbúðir með sem lægstum tilkostnaði. Það markmið hefur tekist sérlega vel þegar kemur að lífræna túrmerik duftinu þeirra sem ræktað er í Indlandi, frostþurrkað og malað. Í gegnum allt framleiðsluferlið er þess gætt að skaðleg efni komist hvergi nærri jurtinni, allt frá umhverfi akranna til meðhöndlunar í þurrkun og pökkun.
Kosti túmeriks þarf vart að tíunda en það er þekkt fyrir bólgueyðandi og ónæmisstyrkjandi eiginleika sína auk þess að vera dásamlegt krydd og ómissandi í indverskum karrýréttum. Bættu klípu af túrmeriki í sem flestar máltíðir til að njóta áhrifanna sem best.
Innihaldslýsing: Kókos, kókosnektar, tapíókasterkja, kakó, salt.
Næringargildi í 100g: Orka 2640kJ/631kkal, Fita 48g, þar af mettuð 42,4g, Kolvetni 43,2g, þar af sykurtegundir 19,2g, Trefjar 14,1g, Prótein 6,5g, Salt 0,76g.
Í Ekvador vaxa “Arriba Nacional” kakóbaunirnar sem notaðar eru í lífræna kakóduftið frá Kiki Health. Þær eru ræktaðar í steinefnaríkum jarðvegi hátt yfir sjávarmáli þar sem eldfjallaaska hefur gefið moldinni einstaka nærandi eiginleika. Kakóbaunirnar eru sólþurrkaðar eftir tínslu og malaðar í duft.
Bragðið er kraftmikið og djúpt súkkulaðibragð með örlitlum berjakeimi og léttum kaffitónum.
Jackfruit og barbeque sósa eru því sem næst fullkomin tvenna, til dæmis í borgara eða samlokur, ofan á pizzur eða í vefjur. Hér kemur þessi blanda tilbúin beint úr dósinni og má borða kalda eða hita á pönnu.
Innihald: grænn jackfruit ávöxtur (55%), vatn (12,68%), tómatar (10%), sykur (10%), hvítlaukur (5%), skallottlaukur (3%), salt (1,3%), umbreytt maíssterkja (1%), engifer (1%), pipar (0,5%), sinnepsduft (0,5%), BBQ bragðefni (0,01%), paprika (0,01%).
Næringargildi í 100 gr: Orka 391kJ/93kkal, Fita 0,8g, þar af mettuð 0g, Kolvetni 20,7g, þar af sykurtegundir 14,4g, Trefjar 3,7g, Prótein 1,3g, Salt 1,3g.
Alla daga frá kl.11:00 - 19:00
Faxafen 14, 108 Reykjavík
7793600
veganbudin@veganbudin.is
Veganmatur ehf. | KT 590517-0460 | VSKNR 128270